21.04.2012 12:13

Vorkoma 2012


Gleðilegt sumar kæri félagr.
Hjá okkur eru þrír gemlingar bornir og allir með gimbrar, þannig að lambakóngurinn er ekki enn komin. Vonandi koma allir vel undan vetri því nú er spennandi tími framundan.
Kveðja Dóra og Bárður

06.04.2012 13:05

Rolluflandur Dísu og fyrstu lömbin hjá Brynjari og Gumma í Ólafsvík.

Jæja ákvað að lífga aðeins upp á síðuna hér og fór í smá rollu flandurs leiðangur á ýmsa staði mér til gamans úr því að ég komst ekki neina Sauðfjárræktarferð Vorsins. En ég vil benda á að á síðunni hans Svans í Dalsmynni eru flottar myndir af Vorferð Sauðfjárræktafélagana hér á síðunni hans svo endilega kíkið á það. 

Jæja ég er búnað koma viðs vegar við og má þar nefna á Hömrum hjá Bárði,Dóru og Herði og Laugu. Guðmundi Ólafs í Ólafsvík. Stebba og Heimi í Ólafsvík . Óla,Brynjari og Sigga í Ólafsík. Inn í Bug hjá Óskari og Jóhönnu. Hjá mér Dísu og Bóa. Á Hálsi hjá Þórunni og Gendi og svo hjá Marteini inn í Ólafsvík þá held ég að þetta sé upptalið hjá mér svo endilega kíkið á þessi 2 myndaalbúm sem ég setti inn. En ég ætla að byrja á að setja hér lambamyndirnar sem eru af fyrstu lömbunum hér í Ólafsík og eru einnig fleiri myndir af þeim í albúminu.

Þessi er í eigu Brynjars í Ólafsvík og er hún með móflekkótt og svarflekkótt lömb.

Hér er ein með grábotnótt frá Brynjari líka.

Þessi er frá Gumma og er með gimbur og hrút.

Flott þessi hjá Gumma sem er með móflekkóttan hrút og bar hún allveg óvart hann vissi ekki af henni.

Sakalega flottir hrútarnir hjá Bárði hér er Kletts sonur frá Óttari og Freyr Sokka sonur hjá Bárði sem hefur bætt allveg rosalega mikið við sig.

Fallegir gemlingar hjá Bárði.

Heimasætan hans Marteinns í fjárhúsunum.

Topps sonur og Heisi hjá Stebba og Heimi.

Bjartur hans Óskars í Bug hann er undan Magna frá Hjarðafelli og hann er sjúkur í lýsi svakalega fallegur hrútur.

Rollurnar hjá Þórunni og Gvendi í Hálsi.

  • 1
Flettingar í dag: 40
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 32
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 105625
Samtals gestir: 32236
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:31:46